Rannsókn á afleiðingum atvinnuleysis

49. fundur
Mánudaginn 09. nóvember 1992, kl. 15:28:20 (1992)

     Flm. (Svavar Gestsson) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þau orð sem hv. 5. þm. Suðurl. lét falla áðan. Ég tel að athugasemdir hans séu réttar og vil bæta því við að mér sýnist miðað við þann fjölda sem er á mælendaskrá í þessu máli að það megi gera ráð fyrir því að þessi umræða haldi áfram á morgun eða síðar í vikunni og ég óska eftir því að forseti hlutist til um að hæstv. félmrh. verði örugglega viðstaddur framhald umræðunnar.