Afgreiðsla fjárlagafrumvarps

74. fundur
Miðvikudaginn 09. desember 1992, kl. 13:48:38 (3179)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Miðað við þær upplýsingar sem forsætisnefnd hefur er reiknað með að þessi umræða geti farið fram á morgun. En forseti vill geta þess að það er forsætisnefndarfundur um miðjan daginn í dag og þá verður það væntanlega endurskoðað ef nýjar upplýsingar hafa komið fram. En miðað við viðbrögð hv. formanns nefndarinnar þá telur hann að umræðan geti farið fram á morgun.