Fjárlög 1993

78. fundur
Föstudaginn 11. desember 1992, kl. 01:12:04 (3319)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það má vel vera að ég hafi ekki skilið þetta alveg. Vinnudagur hjá okkur þingmönnum eru farinn að verða nokkuð langur núna þannig að kannski eru sellurnar ekki alveg í lagi. En ég þakka hæstv.

ráðherra fyrir að koma þessu á framfæri og ég vona svo sannarlega að þetta verði til þess að styrkja þá rannsókna- og vísindastarfsemi sem okkur er mjög mikil nauðsyn á að efla.