Húsnæðisstofnun ríkisins

85. fundur
Fimmtudaginn 17. desember 1992, kl. 13:47:58 (3709)


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Út af orðum hv. síðasta ræðumanns til að fyrirbyggja misskilning vil ég taka fram að það sem fram kom í máli hans, þar sem hann vitnaði í mína ræðu, að félmrn. hefði átt í mesta basli með að fá fram upplýsingar hjá Húsnæðisstofnun, er of djúpt í árinni tekið. Það sem ég var að vitna til er að félmrn. er samkvæmt fjárlögum sett að ná fram ákveðnum sparnaði í rekstri Húsnæðisstofnunar. Til þess að vinna að því verki var sl. haust skipuð framkvæmdanefnd með aðild Húsnæðisstofnunar, Hagsýslustofnunar og félmrn. Þessi nefnd telur sig ekki hafa getað fengið fram þær upplýsingar og gögn sem hún þarf á að halda til að geta unnið sitt verk.