Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Flest Vesturlönd fagna því að hægt er að verja lægri upphæðum til varnarmála. Á Íslandi eyddum við 35,9 millj. í seinustu fjárlögum til varnarmála. Frv. gerði ráð fyrir að verja 40,4 millj. til varnarmála á þessu ári. Þar sem ég hef ekki frétt af hinni nýju stríðshættu, getur varla verið annað en Efnahagsbandalag Evrópu, þá segi ég já.