Ferill 102. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. –
102
. mál.
120. Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um heildarafla á Íslandsmiðum.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
Hverjar voru tillögur Hafrannsóknastofnunar um heildarafla eftirtalinna fisktegunda á árunum 1977 til og með 1992:
þorsks,
ýsu,
ufsa,
karfa,
grálúðu,
skarkola,
rækju,
síldar,
loðnu?
Hver var heildarveiðin á ofangreindum fisktegundum á árunum 1977–1991?
Hver er áætluð heildarveiði á ofangreindum fisktegundum nú í ár?
Skriflegt svar óskast.