Ferill 9. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 9 . mál.


358. Breytingartillögur



við frv. til samkeppnislaga.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Við IV. kafla bætist ný grein er verði 17. gr. og orðist svo:
                  Fyrirtæki, sem telst markaðsráðandi á einu sviði samgangna, er óheimilt að vera ráðandi aðili eða eiga stærri eignarhlut en 25% í öðrum markaðsráðandi fyrirtækjum sem starfa að samgöngum.
    Við 62. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Í því skyni að veita hæfilegan aðlögunartíma skulu ákvæði 17. gr. þó ekki öðlast gildi fyrr en 1. janúar 1995.