Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 285 . mál.
537. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum, og um stofnun hlutafélags um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum.
Frá meiri hluta heilbrigðis- og trygginganefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Pál Sigurðsson, Þorkel Helgason, Jón Sæmund Sigurjónsson, Guðjón Magnússon, Dögg Pálsdóttur, Magnús R. Gíslason og Einar Magnússon frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Gylfa Arnbjörnsson frá Alþýðusambandi Íslands, Ögmund Jónasson og Ragnhildi Guðmundsdóttur frá BSRB, Þórð Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Árna Guðjónsson frá Innheimtustofnun sveitarfélaga, Birnu Hreiðarsdóttur frá Jafnréttisráði, Þuríði Jónsdóttur frá Neytendasamtökunum, Finnboga Rút Hálfdánarson frá Lyfjafræðingafélagi Íslands, Guðmund Reykjalín frá Apótekarafélagi Íslands, Sigmar Ármannsson frá Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Önnu Ragnarsdóttur frá Félagi einstæðra foreldra, Andra Árnason og Runólf Ólafsson frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Ingólf Finnbjörnsson frá Samtökum landflutningamanna, Hilmar Björgvinsson og Kristján Guðjónsson frá Tryggingastofnun ríkisins, Jón Ásgeir Eyjólfsson og Svend Richter frá Tannlæknafélagi Íslands, Skúla G. Johnsen frá héraðslæknisembætti Reykjavíkur, Ingimar Sigurðsson frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Guðmund Eyjólfsson og Högna Óskarsson frá Læknafélagi Reykjavíkur, Kristján Erlendsson frá Læknafélagi Íslands, Unni Halldórsdóttur frá Heimili og skóla, Sigurbjörn Sveinsson frá Félagi heimilislækna, Ólaf F. Magnússon frá Félagi sjálfstætt starfandi heimilislækna og Tómas Jónsson og Víglund Þór Þorsteinsson frá Sérfræðingafélagi íslenskra lækna. Þá bárust nefndinni gögn og erindi um málið frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Félagi einstæðra foreldra, stjórn Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, Félagi skólatannlækna, Öryrkjabandalagi Íslands, Landssamtökunum Heimili og skóli, Félagi sjálfstætt starfandi heimilislækna, Félagi íslenskra heimilislækna, héraðslækninum í Reykjavík, Skólatannlækningum Reykjavíkur, Tryggingastofnun Reykjavíkur, fimm félagsmönnum í Læknafélagi Reykjavíkur og Sérfræðingafélagi íslenskra lækna.
Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingar meiri hlutans eru eftirfarandi:
Meiri hluti nefndarinnar vill benda á að við umfjöllun málsins í nefndinni hefur komið fram að verulegur ágreiningur er um notkun tilvísana til sérfræðinga bæði meðal lækna og almennings. Meiri hlutinn leggur því á það áherslu að mikilvægt sé að ráðherra láti fara fram nákvæma athugun á því hvort heppilegt sé að gera notkun tilvísana til sérfræðinga að reglu áður en hann beitir því heimildarákvæði sem kveðið er á um í breytingartillögu meiri hlutans. Lára Margrét Ragnarsdóttir skrifar undir álit meiri hlutans með fyrirvara þar sem hún er andvíg hugmyndum um að skilyrða greiðslu sjúkratrygginga fyrir sérfræðilæknishjálp og rannsóknir við að sjúklingar hafi tilvísun frá heimilislækni eða heilsugæslulækni.
Alþingi, 19. des. 1992.
Sigbjörn Gunnarsson,
Sigríður A. Þórðardóttir.
Guðmundur Hallvarðsson.
form., frsm.
Árni M. Mathiesen.
Lára Margrét Ragnarsdóttir,
með fyrirvara.