Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 145 . mál.


551. Breytingartillögur



við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1993.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (VE, GuðjG, IBA, RG, SP).


    Við 1. gr. Í stað „15.800“ komi: 15.420.
    Á eftir 5. gr. komi ný grein er orðist svo:
                  Fjármálaráðherra er heimilt að lána Byggðastofnun sérstaklega víkjandi lán að fjárhæð allt að 20 m.kr. til að mæta framlögum í afskriftarsjóð útlána í tengslum við ákvæði í viðauka II við búvörusamning frá 11. mars 1991.