Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
116. löggjafarþing 1992–1993.
Nr. 5/116.
Þskj. 601 — 275. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samninga við Efnahagsbandalag Evrópu um fiskveiðimál og lífríki hafsins.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd:
samning í formi erindaskipta milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu um fiskveiðimál sem gerður var í Óportó 2. maí 1992;
samning um fiskveiðimál og lífríki hafsins milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu sem gerður var í Brussel 27. nóvember 1992.
Samþykkt á Alþingi 13. janúar 1993.