Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 387 . mál.


681. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um unglingaheimili og meðferðarheimili fyrir börn í erfiðleikum.

Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.



    Hvaða unglingaheimili og meðferðarheimili eru rekin hér á landi fyrir börn sem eiga við hegðunarerfiðleika að stríða, sbr. 51. gr. laga um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992? Hvar á landinu eru þau? Er fyrirhugað að fjölga slíkum heimilum og dreifa þeim víðar um landið?