Ferill 436. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 436 . mál.


736. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um störf nefndar til að bæta starfsskilyrði ferðaþjónustunnar.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Hvað líður störfum nefndar fulltrúa samgöngu- og fjármálaráðuneyta sem gera á tillögur um bætt starfsskilyrði ferðaþjónustunnar, þar með talið að gera tillögur um að létta álögum af greininni?
    Var erindisbréfi nefndarinnar breytt í framhaldi af þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja virðisaukaskatt á ýmsar greinar ferðaþjónustu sem áður voru undanþegnar?