Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 476 . mál.


823. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um heimili fyrir alfatlaða.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.



    Hver var byggingarkostnaður heimilis fyrir alfatlaða sem byggt var í landi Reykjalundar?
    Hvernig var byggingin fjármögnuð, með
         
    
    söfnunarfé,
         
    
    framlögum úr Framkvæmdasjóði fatlaðra,
         
    
    öðru?
    Hvenær var húsið fullbyggt?
    Hvað var gert ráð fyrir mörgum vistmönnum við hönnun hússins?
    Hvenær verður húsið tekið í notkun?