Ferill 532. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 532 . mál.


890. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um aðgerðir gegn sandfoki á Mývatnssvæðinu.

Frá Pálma Jónssyni.


    Hvað hefur verið gert af hálfu opinberra aðila síðustu sex árin til að hefta sandfok sem ógnar náttúruperlum Mývatnssveitar ásamt gróðri í byggð og afréttarlöndum?
    Hvað hafa þessar aðgerðir kostað?
    Til hvaða aðgerða er áætlað að grípa á þessu ári?