Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 22:48:01 (3470)

     Forseti (Gunnlagur Stefánsson) :
    Ég verð að upplýsa hv. 9. þm. Reykv. um það að hann hefur nú þegar talað tvisvar sinnum um fundarstjórn og hann hefur tvisvar sinnum fengið að bera af sér sakir. Skv. 55. gr. þingskapa má enginn þó tala lengur en þrjár mínútur í senn og ekki oftar en tvisvar um hvert atriði, þ.e. um fundarstjórn forseta og til þess að bera af sér sakir. Það gildir einnig hvað varðar athugasemd um atkvæðagreiðslu en hér fer ekki fram nein atkvæðagreiðsla. Forseti verður því að tilkynna hv. þm. að hann hefur þegar lokið ræðufjölda og ræðutíma sínum við þessa umræðu um fundarstjórn og að bera af sér sakir.