Stöðvun verkfalls fiskimanna

77. fundur
Miðvikudaginn 26. janúar 1994, kl. 15:18:27 (3507)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti vill segja aftur frá því að atkvæðagreiðslan fór þannig að já sögðu 22, 19 greiddu ekki atkvæði og fjarstaddir voru 22. Samþykkt er að vísa málinu til 2. umr. og ef engin hreyfir andmælum verði 1. dagskrármálinu vísað til sjútvn. ( SJS: Það þarf að greiða atkvæði um það.) Það er óskað eftir að fram fari atkvæðagreiðsla um að vísa 1. dagskrármálinu, stöðvun verkfalls fiskimanna, til sjútvn. Við því verður orðið.