Starfshættir nefnda, vinnubrögð í landbúnaðarnefnd

77. fundur
Miðvikudaginn 26. janúar 1994, kl. 16:06:47 (3530)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti vill aftur vekja athygli á 26. gr. þingskapa sem hann hefur áður vitnað til vegna fyrirspurnar þar að lútandi og einnig benda á að þar hlýtur að gilda sú almenna regla um meiri hluta hv. þm. að baki þess að mál sé tekið upp í nefndinni og hvernig um það er fjallað.