Flutningastarfsemi á grundvelli EES-samningsins

84. fundur
Mánudaginn 07. febrúar 1994, kl. 17:15:47 (3858)


[17:15]
     Fyrirspyrjandi (Sigurður Rúnar Friðjónsson) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. svörin en eins og fram kemur er ljóst að samgöngukerfið á nokkuð í land með að ná þeim afköstum sem eru í okkar nágranna- og samkeppnislöndum og er því afar nauðsynlegt að unnt verði að auka afköst vegakerfisins sem allra fyrst.