Atvinnuleysisbætur smábátaeigenda

84. fundur
Mánudaginn 07. febrúar 1994, kl. 17:27:05 (3862)


[17:27]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég deili þeim sjónarmiðum með síðasta ræðumanni að það er erfitt við það að una að staða þessara hópa sé verri eftir lagabreytinguna og reglugerðarbreytingarnar en hún var fyrir. Þess vegna var það sem ég ákvað að leita eftir afstöðu stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs til þess að athuga hvort ekki væri hægt að ná fram samstöðu um breytingar. En ég ítreka það að ég tel ekki rétt að ég greini hér frá afstöðu minni eða hugsanlegum breytingum fyrr en stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs hefur fengið tækifæri til þess að fjalla um málið og senda mér álit sitt.