Varamaður tekur þingsæti

88. fundur
Mánudaginn 14. febrúar 1994, kl. 15:03:45 (4010)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með tilvísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþingmaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Jón Kristjánsson, 2. þm. Austurl.``


    Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu þingi og er boðinn velkominn til starfa.