Gerð flugmálaáætlunar

98. fundur
Mánudaginn 28. febrúar 1994, kl. 15:08:20 (4485)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti leit svo á að hv. þm. væri að beina orðum sínum til þess ráðherra sem fer með þau mál sem hv. þm. var að gera athugasemdir við. En forseti getur tekið undir það að sú breyting sem gerð var hér á sínum tíma á þingsköpum var m.a. gerð til þess að styrkja stöðu þingnefnda.