[16:22]
Jón Kristjánsson :
Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli. Svar hæstv. landbrh. kemur mér ekki á óvart. Ég vissi að hann hefði hug á því að hrinda fram þessu máli. Það kemur mér ekkert á óvart að Alþfl. stoppi þetta mál því að það heyrir undir landbúnaðarmál og það er upplýst að Alþfl. kemst ætíð í annarlegt ástand þegar þau mál eru til umræðu. Þetta mál er því upplýst, þingflokkur Alþfl. liggur sem sagt á þessu sjálfsagða máli og er fyrirspurninni þá svarað.