Varamenn taka þingsæti

103. fundur
Þriðjudaginn 08. mars 1994, kl. 13:32:39 (4810)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 4. mars 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum utan á þing Norðurlandaráðs óska ég eftir því að 1. varaþm. Alþfl. í Vestf., Pétur Sigurðsson, taki sæti á Alþingi.
Sighvatur Björgvinsson viðskrh.``


    Pétur Sigurðsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.

    Þá hefur borist annað bréf sem er dags. 2. mars 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþm. Alþb. í Austurl., Einar Már Sigurðarson kennari, Neskaupstað, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.

Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl.``


    Einar Már Sigurðarson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.