Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 18:33:04 (5010)


[18:33]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það lá alveg ljóst fyrir sl. vor að hefði það frv. sem þá var lagt fram verið samþykkt þá hefði allt það málavafstur sem hér hefur verið ekki þurft að koma til. Það vildi að sjálfsögðu ekki Alþfl. og alls ekki hæstv. utanrrh. eins og menn muna frá liðnu vori. Þetta frv. sem hér á að koma áfram í gegnum þingið mun enn þá valda sama ágreiningnum úti í þjóðfélaginu og bændur og þeir sem þurfa að styðjast við þetta vita ekkert hvar þeir standa.