Hlutafélög

112. fundur
Föstudaginn 18. mars 1994, kl. 17:07:23 (5369)


[17:07]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég skal koma ábendingu hæstv. ráðherra til skila um betra nafn á þessu. Ég get alveg tekið undir að þetta er hálfgert vandræðanafn. Þá spyr ég hæstv. ráðherra í því sambandi að tala um eignarhlutafélög og hlutafélög hins vegar: Hefur það verið rætt eitthvað í ráðuneytinu? Ég sá það ekki í gögnunum hver væri skammstöfun eignarhlutafélags samanber hf. fyrir hlutafélag.