Framleiðsla og sala á búvörum

122. fundur
Þriðjudaginn 29. mars 1994, kl. 15:33:29 (5724)



[15:33]
     Kristín Ástgeirsdóttir (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég vildi eingöngu vekja athygli þeirra þingmanna sem hér eru á þeim bunka sem hér er verið að dreifa. Þetta vekur spurningar um þau furðulegu vinnubrögð sem hér tíðkast þegar mál liggja mánuðum saman inni í ráðuneytum en er svo skilað hér inn rétt undir þinglok og fá enga umfjöllun, það tekst ekki einu sinni að koma þeim til umsagnar. Þetta eru einfaldlega ekki nógu góð vinnubrögð.