Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 6. apríl 1994:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm.
Samtaka um kvennalista í Reykv., Guðrún J. Halldórsdóttir skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti,
Guðrún J. Halldórsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.
Þá hefur borist hér annað bréf, dags. 29. mars 1994:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindagjörðum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær þingvikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að í forföllum 1. varaþm. Alþfl. í Reykv. taki 2. varaþm., Valgerður Gunnarsdóttir, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Þá er hér annað bréf, dags. 29. mars 1994:
,,Undirritaður, 1. varaþm. Alþfl. í Reykv., getur ekki vegna anna og utanferðar tekið sæti Jóns Baldvins Hannibalssonar utanrrh. á Alþingi frá 6. apríl 1994 að telja. Óska ég eftir að Valgerður Gunnarsdóttir, 2. varaþm. Alþfl. í Reykv., taki sæti í hans stað.
Valgerður Gunnarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.