Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

145. fundur
Föstudaginn 29. apríl 1994, kl. 16:38:14 (6858)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti telur að tvær leiðir séu til í þessu máli. Önnur er sú að gert yrði hlé á umræðu og nefndin fengi þessar nýju brtt. til meðferðar. Hin er að þær komi til meðferðar nefndarinnar milli 2. og 3. umr. Forseti sér ekki aðrar leiðir í því en það er komið undir vilja hv. þm. hvernig þeir kjósa að ráða þeim málum.
    Forseti vildi nú leggja til að hlé verði gert í 5 mínútur þar sem hv. formaður umhvn. og nefndarmenn gætu átt viðræður við hæstv. umhvrh. um frekara framhald þessa fundar.