Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

148. fundur
Þriðjudaginn 03. maí 1994, kl. 01:49:19 (7064)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill vekja athygli hv. þm. á því sem hér hefur komið fram, að formaður hv. umhvn. hefur beitt sér fyrir tilteknu samkomulagi innan nefndarinnar sem er auðvitað afar mikilvægt í þessari stöðu. Forseti hafði vænst þess að það mætti á grundvelli þess samkomulags ná fram þeim áfanga að ljúka umræðunni. Forseti vill auk þess hvetja hv. þm. til að stytta umræður sínar um stjórn þingsins ef það mætti verða til þess að samkomulag næðist um framhaldið.