[22:56]
Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ef húsaleigubætur eiga að nýtast þeim sem þær eiga að nýtast þá verður málið auðvitað að vera vandaðra en það er í dag. Það er ljóst. Og ég held að málið hafi reynt það mikið á þetta stjórnarsamstarf að ég trúi því ekki að það muni ríða því að fullu þó málið sé tekið aftur inn í félmn. því að það er þá orðið veikur þráður á milli. Þannig að ég geri það aftur að tillögu minni að þetta mál fari til umfjöllunar í hv. félmn. að nýju.