[23:13]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Herra forseti. Í svörum hæstv. fjmrh. kemur ekki fram hvenær hann er tilbúinn að láta þessa endurskoðun á skattkerfinu fara fram. Það skiptir auðvitað miklu máli í ljósi þeirra umræðna sem hafa verið áður og í ljósi þeirra ummæla sem hafa fallið frá hans flokksmönnum í þessari umræðu að það liggi ljóst fyrir hvort það er hægt að láta fara fram endurskoðun á skattkerfinu, hvað sem hún verður víðtæk, áður en þetta frv. á að taka gildi um næstu áramót. Það skiptir auðvitað mjög miklu máli að þessar húsaleigubætur nýtist þeim sem þeirra eiga að njóta.