Leikskólar

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 10:39:51 (7589)


[10:39]
     Guðrún J. Halldórsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil ekki draga úr því, síður en svo, að það hafi verið haldin góð og merk námskeið fyrir ófaglært starfsfólk á dagvistarheimilum. Það hefur líka verið í gangi afskaplega góð kennsla fyrir leikskólakennara sem hefur farið fram í Fósturskóla Íslands. En ég get ekki skilið af hverju má aðeins nefna menntun leikskólakennara en ekki menntun annars starfsfólks. Mér er alveg fyrirmunað að skilja af hverju þarf að gera greinarmun þarna á.