Lyfjalög

154. fundur
Laugardaginn 07. maí 1994, kl. 11:45:27 (7613)


[11:45]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessar upplýsingar. Ég held að það sé mjög mikilvægt að fyrir liggi fyrir lokaafgreiðslu málsins að þessi nefnd verði skipuð tafarlaust og vonandi verður hún vel skipuð þannig að hún geti rækt þau verkefni sem henni eru ætluð.
    Ég endurtek svo það líka sem ég sagði áðan að mér finnst að það væri skynsamlegt að reikna með því að skýrsla þessarar nefndar verði lögð fyrir Alþingi til umræðu þannig að það verði hægt að meta málið algjörlega í heild þegar niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir.