Lífeyrissjóður sjómanna

159. fundur
Miðvikudaginn 11. maí 1994, kl. 15:21:38 (7977)


[15:21]
     Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegur forseti. Ég tek eftir því að það er hlaupið yfir 7. dagskrármálið, frv. um vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum sem var á dagskránni og rætt fyrir atkvæðagreiðslu. Ég gerði hlé á máli mínu í miðri ræðu og undrast það ef ekki er haldið áfram umræðu um þetta mál þannig að ég geti komið mínum sjónarmiðum að og óska eftir því að það verði gert.