Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Svo háttar til með þau tvö mál sem á dagskrá eru, sem verið er að útbýta hér á fundinum, að of skammt er liðið frá fyrri umræðu eða útbýtingu og verður því að leita afbrigða um að bæði þessi mál megi koma á dagskrá og til umræðu og verður nú þeirra afbrigða leitað.