Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Forseti mun í framhaldi af kjöri til fastanefnda beita sér fyrir því sem fyrr að gerð verði áætlun um fundatíma nefndanna. Ætlun forseta er að slík fundaáætlun liggi fyrir á morgun, föstudag, og geti nefndirnar þá komið saman til síns fyrsta fundar samkvæmt þeirri áætlun í næstu viku og kosið sér formenn og varaformenn og eftir atvikum fjallað um þau mál er til þeirra hefur verið vísað.