Auglýsingar ríkisins og stofnana þess

10. fundur
Mánudaginn 11. október 1993, kl. 17:19:16 (163)


[17:19]
     Egill Jónsson :
    Virðulegi forseti. Þetta eru nú gagnlegar umræður. ( IP: Það má nú segja.) Það er út af fyrir sig nokkuð merkilegur vettvangur að spyrja og tala við ráðherra um þessi mál. En með því að það er nú að hefjast umræða og undirbúningur að fjárlagaafgreiðslu hér á Alþingi og m.a. vegna þess að það eru a.m.k. tveir góðir vinir mínir og flokksbræður úr Sjálfstfl. sem hafa nú talað hér í þessari umræðu, sem líka eiga sæti í fjárln., þá vildi ég mjög eindregið óska eftir því að þeir notuðu aðstöðu sína þar við að koma fram tillögum sem kæmu skikk á þessi mál í þeim anda sem orð hafa hér fallið sem þeir sjálfir töluðu um og ég er hjartanlega sammála.