[14:34]
Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi ekki farið rangt með orð hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur. Hún fullyrti það hér í ræðu sinni áðan að þingmenn hefðu lagst gegn hækkunum sem í kjaradómi voru fólgnar af ótta við kjósendur sína. Með öðrum orðum af einhverjum lágkúrulegum hvötum.