Vegalög

24. fundur
Miðvikudaginn 27. október 1993, kl. 15:34:13 (734)

[15:34]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hélt að hv. þm. vissi að fé til framkvæmda samkvæmt fjárlögum fer auðvitað eftir því sem Alþingi ákveður hverju sinni. Auðvitað liggur ekki fyrir nein áætlun um það á þessu stigi og allra síst hjá Vegagerðinni í hvaða framkvæmdir verði ráðist hjá einstökum sveitarfélögum á næstu árum nákvæmlega og í hvaða framkvæmdir verður farið úr Vegasjóði samkvæmt ákvörðun Alþingis. Slík niðurstaða liggur ekki fyrir. Þess vegna er gersamlega útilokað að ætla að svara því núna eða fara fram á að ég hafi einhver svör um það hversu miklum fjármunum verði varið til vegamála á næstu árum, hvernig þeim verði skipt milli ríkisvaldsins og sveitarfélaganna og þar fram eftir götunum. Slíkar upplýsingar liggja ekki fyrir og geta ekki legið fyrir eðli málsins samkvæmt.