Kostir þess að gera landið að einu kjördæmi

25. fundur
Fimmtudaginn 28. október 1993, kl. 13:32:55 (771)


[13:32]
     Páll Pétursson (andsvar) :
    Að sjálfsögðu skiptir það einhverju máli, frú forseti. En það hefur engin úrslitaáhrif og það sem ég var að reyna að benda á er það að ástandið í dreifbýli á Ísland í dag er með þeim hætti að það er full ástæða og fullt verk að vinna fyrir okkur dreifbýlisþingmenn.