Stjórnmálafundur í Þingvallabænum

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 13:49:26 (1136)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta finnst að þessi athugasemd heyri ekki beinlínis undir störf þingsins og hefði frekar kosið að svara þessu annars staðar í þinghúsinu ef því væri að skipta. Hins vegar getur forseti upplýst að þegar viðkomandi þingmaður hringdi og bað þá sem hér stendur að koma til fundar og taka þar til máls þá spurði forseti um fundarstaðinn, hvernig á því stæði að hann væri á þessum stað, og fékk þær upplýsingar að það væri ekkert við það að athuga, þarna væru stundum haldnir fundir. Meira veit forseti ekki um þetta mál en vill svo gjarnan fá frekari upplýsingar og svara því þá á öðrum vettvangi en úr forsetastóli sem forseta finnst orka tvímælis að sé rétt.