Flutningur ríkisstofnana

36. fundur
Mánudaginn 15. nóvember 1993, kl. 15:32:08 (1307)

[15:32]
     Árni M. Mathiesen :
    Hæstv. forseti. Þessi umræða kemur mér verulega mikið á óvart. Sérstaklega áhugi hv. stjórnarandstöðuþingmanna á þessu máli einmitt í dag. Á síðasta þingi fluttu hv. alþingismenn Kristín Ástgeirsdóttir og Jóhannes Geir Sigurgeirsson frv. um þetta sama efni. Og ef ég man rétt þá vorum við fjögur hér í salnum sem tókum þátt í umræðunni. Þess vegna segi ég það, hæstv. forseti, að hann kemur mér verulega á óvart þessi mikli áhugi. Ég eiginlega veit ekki af hvaða hvötum hann er sprottinn hér í dag.