Hafnalög

37. fundur
Þriðjudaginn 16. nóvember 1993, kl. 14:17:00 (1393)

[14:17]
     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er alveg rétt hjá hæstv. samgrh. að það er opin leið og mér finnst það ekki nema sjálfsagt að það sé opin leið, en eitthvað er ráðuneytið ekki alveg trúað á það að sú leið verði farin því að það stendur hér á bls. 9, með leyfi forseta:
    ,,Þannig er ekki gert ráð fyrir að hafnasamlag á Vestfjörðum verði raunhæft fyrr en lokið er gerð jarðganga . . .  ``