Seðlabankastjóri

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 13:41:43 (1466)

[13:41]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Hér hefur komið í ljós eins og ég sagði áðan að hv. þm. Páll Pétursson er einn af helstu meðmælendum Jóns Sigurðssonar og hefur ávallt tekið það sérstaklega fram. Ég vona að þessi orð hans hér verði ekki til að grafa undan trausti norrænna manna á hv. seðlabankastjóra. En ég verð að segja það að alltaf kemur mér Kristján heitinn á Garðstöðum í hug þegar ég hlusta á hv. þm. Pál Pétursson ræða um annað fólk því eins og þeir vita sem þekktu Kristján frá Garðstöðum þá gat hann aldrei öfugt orð sagt í nokkurs manns garð.