[13:57]
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Ég vil ítreka aftur að þeir fjármunir sem í þetta er varið koma úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Það er með fullu samþykki og samráði Sambands ísl. sveitarfélaga að verja þessu fjármagni í þetta verkefni og ég ítreka aftur að það er umdæmanefndin sjálf sem ákveður hvernig hún setur fram sína kynningu og hún hefur ákveðið að gera það eins og er í þessum bæklingi. Ég veit ekki betur en umdæmanefndin sé skipuð, af því að vitnað er til þess plaggs sem dreift er hér á höfuðborgarsvæðinu, sveitarstjórnarmönnum af öllum þeim stöðum sem á að kjósa um hér á höfuðborgarsvæðinu og það er þeirra fyrst og fremst hvernig þeir hafa ákveðið að standa að þessu en ekki félmrn.