Sameining sveitarfélaga

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 14:01:31 (1486)

[14:01]
     Ingibjörg Pálmadóttir :
    Virðulegi forseti. Það er greinilegt að það á að þvinga fram þessa sameiningu með Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og það kom einnig fram hér áðan og kom fram á fundi í gær að þeim sem ekki sameinast verði refsað vegna þess að tekjujöfnunarframlagið verður lækkað hjá þeim sveitarfélögum og þjónustugjöldin hækkuð hjá þeim sveitarfélögum sem sameinast. Þetta er greinilega á hreinu.