Tekjustofnar sveitarfélaga

42. fundur
Þriðjudaginn 23. nóvember 1993, kl. 16:13:59 (1772)


[16:13]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessar upplýsingar. Það kemur sem sagt í ljós að hérna er um nokkra leikfléttu að ræða. Hér er þessum króga skotið yfir á sveitarfélögin og svo eiga sveitarfélögin að skjóta honum af verslunarhúsnæðinu og yfir á annað atvinnuhúsnæði. Þannig á að koma þessu óhreina barni af sér. Það er ljóst og ég þakka fyrir þessar upplýsingar.