Fundur í Þingvallabænum 1. desember

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 13:36:04 (1996)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Hv. þm. spurði forseta um skoðun hans á þessum tiltekna fundi sem fram á að fara að hans sögn í Þingvallabænum á morgun. Ég get sagt það að ég hef ekki mótað mér neina skoðun á þessu máli þar sem ég hef ekki kynnt mér það, en ég minnist þess að um þetta var spurt á forsætisnefndarfundi ekki alls fyrir löngu og þar urðu ekki miklar umræður um þetta mál. En ég get ekkert sagt frekar um þetta og um þennan sérstaka fund þar sem hér er verið að spyrja um störf forseta þingsins en annan en þann sem hér er við störf núna að þessu sinni.