Prestssetur

51. fundur
Þriðjudaginn 07. desember 1993, kl. 15:13:34 (2268)



[15:13]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Mig gildir í rauninni engu hvað hv. 3. þm. Reykv. segir í þessu efni að öðru leyti en því að hann er formaður Þingvallanefndar. Ég er hins vegar sannfærður um að það verða settar reglur um notkun embættisbústaða af þessu tagi jafnvel þó hann standi þar í vegi fyrir í öllu sínu valdi sem formaður Þingvallanefndar. Ég er kannski ekki viss um að það gerist í tíð núverandi ríkisstjórnar eða núverandi Þingvallanefndar. En það stöðvar enginn ,,tímans þunga nið`` og heldur ekki Þjórsá eins og hv. þm. sjálfsagt veit og við öll.