[13:41]
Guðrún Helgadóttir :
Hæstv. forseti. Í fjarveru hæstv. forsrh. hygg ég að ég geti beint fsp. minni til hæstv. dómsmrh. Í febrúar á sl. ári sagði hæstv. forsrh. hér í þingsal að samningar um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna mundu hefjast innan fárra vikna. Nú vil ég spyrja hæstv. dómsmrh.: Hvaða mat hefur hæstv. ríkisstjórn á því hvað eru fáeinar vikur? Ekki hafa borist enn þá fréttir af því að samningaviðræður séu hafnar og því vil ég beina þeirri fsp. til hæstv. ráðherra: Eru þessir samningar í gangi og ef ekki, hvenær má þá vænta þess að samningaviðræður hefjist?